Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Dagur leikskólans og ný heimasíða sameinaðra leikskóla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
mánudagur, 06 febrúar 2012 11:37

Dagur leikskólans

Mánudaginn 6. febrúar 2012

er dagur leikskólans haldinn í fjórða sinn
í leikskólum landsins.
 
Af því tilefni ætlum við hér í leikskólanum Sunnufold, sameinuðum leikskólum Foldahverfis, að upplýsa um ný nöfn á starfsstöðvarnar okkar
en þau eru fengin úr götunöfnunum sem hver þeirra stendur við.
 
Sunnufold við Frostafold 33= Frosti (áður Foldaborg)
Sunnufold við Logafold 18 = Logi (áður Foldakot)
Sunnufold við Funafold 42 = Funi (áður Funaborg)
 
Miðvikudaginn 18. apríl n.k. (daginn fyrir sumardaginn fyrsta) verður svo haldin nafnahátíð leikskólans Sunnufoldar en meira um það er nær dregur.
 
Einnig verður nýja heimasíða leikskólans Sunnufoldar formlega opnuð:

 

 
Leikskólinn Funaborg Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Leikskólinn
mánudagur, 12 apríl 2004 11:54
  

 

Á Funaborg er leikurinn í hávegum hafður. Leikurinn er vinna og nám barna á fyrsta skólastigi. Í gegnum leikinn þroskar barnið færni sína í félags- og vitsmunaþroska. Við sköpum tíma og rými fyrir leik barnsins og sjáum um að leikefnið sé fjölbreytt og aðgengilegt.
Á Funaborg leggjum við áherslu á að barnið öðlist mynd af sjálfu sér sem hæfum og virtum einstaklingi.

Síðustu ár hefur starfsfólk í Funaborg verið að þróa sig í að vinna í anda Reggio Emilia og munum við halda þeirri vinnu áfram.

Leiðarljós veturinn 2010 - 2011 er:
,,Skoðaðu hvað er að gerast, leyfðu því að gerast eða gríptu inn í."

Hornsteinar Funaborg eru:
Leikurinn, samskipti, sjálfstyrkur barns og val.

Leikskólinn Funaborg tók til starfa sumarið 1994. Arkitektar hússins eru Guðmundur Gunnarsson og Sveinn Ívarsson. Stærð hússins er 434 m2 og byggingin einkennist af opnu rými og glerveggjum.

Í Funaborg dvelja samtímis 52 börn. Stöðugildi í húsinu eru u.þ.b. 11 auk afleysinga. Útileiksvæðið er stórt og fjölbreytt. Leikskólinn stendur við Gullinbrú þar sem stutt er í gönguleiðir, á leikvelli og náttúrusvæði.

Leikskólinn Funaborg
Funafold 42
112 Reykjavík
Ísland

Sími: 5879160
Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.

 

Röskun á starfi vegna óveðurs eða öskufalls - Disruption of school operations

Viðburðir

Engir viðburðir eru skráðir á næstunni

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Funaborg | Funafold 42 | 112 Reykjavík | Sími: 5879160 | Póstur | Viðburðir | Fréttir
canakkale canakkale canakkale truva search