|
Leikskólinn
|
|
mánudagur, 12 apríl 2004 11:54 |
|
Á Funaborg er leikurinn í hávegum hafður. Leikurinn er vinna og nám barna á fyrsta skólastigi. Í gegnum leikinn þroskar barnið færni sína í félags- og vitsmunaþroska. Við sköpum tíma og rými fyrir leik barnsins og sjáum um að leikefnið sé fjölbreytt og aðgengilegt.
Á Funaborg leggjum við áherslu á að barnið öðlist mynd af sjálfu sér sem hæfum og virtum einstaklingi.
Síðasta ár hefur starfsfólk í Funaborg verið að þróa sig í að vinna í anda Reggio Emilia og munum við halda þeirri vinnu áfram.
Leiðarljós veturinn 2010 - 2011 er:
,,Skoðaðu hvað er að gerast, leyfðu því að gerast eða gríptu inn í."
Hornsteinar Funaborg eru:
Leikurinn, samskipti, sjálfstyrkur barns og val.
Leikskólinn Funaborg tók til starfa sumarið 1994. Arkitektar hússins eru Guðmundur Gunnarsson og Sveinn Ívarsson. Stærð hússins er 434 m2 og byggingin einkennist af opnu rými og glerveggjum.
Í Funaborg dvelja samtímis 52 börn. Stöðugildi í húsinu eru u.þ.b. 11 auk afleysinga. Útileiksvæðið er stórt og fjölbreytt. Leikskólinn stendur við Gullinbrú þar sem stutt er í gönguleiðir, á leikvelli og náttúrusvæði.
Leikskólastjóri: Sigríður Jónsdóttir
Aðstoðarleikskólastjóri: Pála Pálsdóttir
Leikskólinn Funaborg
Funafold 42
112 Reykjavík
Ísland
Sími: 5879160
Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.
|